Hæ ég heiti Elísabet Ýrr og ég er orðin stóra systir.
Velkominn á heimasíðuna mína


Um mig:
Ég átti að fæðast laugardaginn 13.ágúst og ég ákvað að láta mömmu og pabba ekkert bíða eftir mér svo ég kom bara í heiminn þann 14 kl 23:48. Þegar að ég kom í heiminn þá var ég með rautt hár og blá augu. Ég var 17 merkur og 53 cm.




Annað:
Mamma mín heitir Laufey og pabbi minn heitir Ingimar, við eigum heima í Grindavík

Lykilorðið í albúmið mitt er millinafnið hennar mömmu





Ljónið
23. júlí - 22. ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.




ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA

Áður en ég varð mamma borðaði ég matinn á meðan hann var heitur, gekk í hreinum fötum og gat spjallað í rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég farið seint í háttinn, sofið út um helgar, greitt mér daglega og gengið um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég því aldrei fyrir mér hvort pottaplönturnar á heimilinu væru eitraðar.

Áður en ég varð mamma hafði enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég skýrt, hafði fullkomið vald yfir líkama mínum og tilfinningum og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei haldið grátandi barni föstu til þess að læknir gæti sprautað það eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei brostið í grát við að horfa í tárvot augu og þekkti ekki þá hamingjuflóðbylgju sem getur sprottð af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég aldrei langt fram á nótt og horfði á barn sofa eða hélt á sofandi barni vegna þess að ég tímdi ekki að leggja það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki hvað ein lítil vera getur haft mikil áhrif á líf manns og hversu óendanlega sárt það er að geta ekki kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki að ég gæti elskað svona heitt og hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég ekki þetta einstaka samband móður við barn sitt og gleðina sem fylgir því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég ekki tíu sinnum á nóttu til þess að aðgæta hvort allt væri ekki örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum, sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir því að eiga barn.
Þú ert gestur nr. 21360